Pétursvirki á Englandi í Lundarreykjadal á sér merka sögu. Það þykir einstaklega haganlega gert, ekki síst í ljósi þess hversu ungur hleðslumaðurinn var. Pétursvirki var endurgert á síðasta ári og á myndinni er Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari að verki loknu. Ljósm. Eva Rós Björgvinsdóttir.

Sex verkefni á Vesturlandi fá framkvæmdastyrki

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tilkynnti um úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða síðastliðinn föstudag. Í ár hljóta 28 verkefni á landsvísu styrk fyrir alls 550 milljónir króna. Þar af eru sex verkefni á Vesturlandi sem fá stuðning. „Verkefnin sem hljóta styrki í ár snúa að fjölbreyttri uppbyggingu um land allt. Það er sérstaklega ánægjulegt að 20 af 28 verkefnum sem hljóta styrk eru skilgreind á áfangastaðaáætlun innan síns svæðis,“ sagði ráðherra m.a. við þetta tilefni. Hæsti styrkurinn að þessu sinni eru 158 milljónir króna í verkefnið „Baugur Bjólfs“ á Seyðisfirði. Sex aðrir styrkir eru hver um sig hærri en 20 milljónir króna, þar á meðal 81,1 milljóna kr. styrkur fyrir öryggi og náttúrvernd við Stuðlagil og 72 milljónir kr. í verkefnið Útsýnispallur í hlíðum Reynisfjalls.

Sex verkefni á Vesturlandi fá framkvæmdastyrki - Skessuhorn