Fréttir

true

„Þetta er bara lífið“

Kristín Benediktsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum og man eftir að hafa séð Surtseyjargosið úr flugvél aðeins tveggja ára gömul. Nú býr hún í Stykkishólmi. Blaðamaður Skessuhorns heimsótti þessa lífsreyndu konu og spjallið var innihaldsríkt. Kristín býr ásamt eiginmanni sínum, Gesti Hólm Kristinssyni, í óvenjulegu húsi sem á sér samfélagslega sögu. Það gegndi áður hlutverki sundlaugar staðarins,…Lesa meira

true

Landmælingar undirbúa flutning í nýjar höfuðstöðvar á Akranesi

Skrifstofur Landmælinga Íslands hafa undanfarin ár verið til húsa að Stillholti 16-18 á Akranesi en stofnunin stendur nú í framkvæmdum á Smiðjuvöllum 28 þar sem nýjar höfuðstöðvar munu koma til með að verða opnaðar á næstu mánuðum. Nýtt fyrirkomulag verður á nýju skrifstofunum en húsnæðið er einnig töluvert minna en það gamla. Nýtt fyrirkomulag verður…Lesa meira

true

Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga

Innviðaráðuneytið býður kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufunda um hinsegin málefni í byrjun maí. Samtökin ´78 sjá um fræðsluna en markmiðið er auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks. Þetta er í annað sinn sem fræðslufundir af þessu tagi eru haldnir en það var fyrst gert í nóvember á síðasta ári.…Lesa meira

true

Nýr framkvæmdastjóri SÍS

Arnar Þór Sævarsson er nýr framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, hann tekur við starfinu af Karli Björnssyni sem lætur af störfum 1. maí n.k. Arnar hefur starfað sem aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra frá árinu 2021 og var aðstoðarmaður félags- og barnamálaráðherra á árunum 2018-2021. Segir í tilkynningu frá SÍS að sem aðstoðarmaður hafi Arnar komið að…Lesa meira

true

ÍA og Kári fengu Keflavík og Þór í Mjólkurbikarnum

Í hádeginu í dag var dregið í 32-liða úrslit í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu og fór drátturinn fram í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Tvö Vesturlandslið voru í pottinum og voru ágætlega heppin með mótherja. Skagamenn fengu útileik á móti Bestu deildar liði Keflavíkur og verður sá leikur miðvikudaginn 19. apríl í Nettóhöllinni í Reykjanesbæ og…Lesa meira

true

Emkan ehf. með lægsta boð í gatnaframkvæmdir á Akranesi

Emkan ehf. var með lægsta boð í þær gatnaframkvæmdir sem Akraneskaupstaður auglýsti fyrr í vor fyrir árið 2023. Um er að ræða viðhald gatna og endurnýjun gangstétta á Leynisbraut, á Garðagrund frá Þormóðsflöt að Bresatorgi og á Bresaflöt frá Bresatorgi að Eyrarflöt. Áætlaður kostnaður við verkið er 144 milljónir króna og bárust fimm tilboð í…Lesa meira

true

Prófuðu nýja safnlaug

Slökkviliðið á Reykhólum fékk nýlega ílát til að safna vatni. Þetta er laug eða sekkur úr sterkum nælondúk sem tekur 15 þúsund lítra. Samanbrotin kemst hún í skottið á flestum bílum. Svona laug er hentug þar sem langt er í vatn frá brunastað. Hægt er að ferja í hana vatn með tankbíl og dæla úr…Lesa meira

true

Langi Seli og Skuggarnir í Landnámssetrinu

Langi Seli & Skuggarnir verða með tónleika á Sögulofti Landnámsseturs í Borgarnesi fimmtudaginn 13. apríl kl. 20:30. „Þetta er rokkabillí veisla eins og þær gerast bestar! Hljómsveitin á sér 35 ára sögu en tók nú síðast þátt í Eurovision með laginu OK og lenti í öðru sæti. Þess má geta að Langi Seli (Axel) er…Lesa meira

true

Kjartan Þór ráðinn leiðtogi Hringrásarsamfélagsins í Reykhólahreppi

Kjartan Þór Ragnarsson hefur verið ráðinn í starf leiðtoga Hringrásarsamfélagsins í Reykhólahreppi en það er verkefni sem áður hét Grænir iðngarðar á Reykhólum. Markmið verkefnisins er að skapa ramma um auðlindamál Reykhólahrepps, að koma á samkomulagi á milli sveitarfélagsins, Þörungaverksmiðjunnar, Orkubús Vestfjarða og ríkisins um auðlindanýtingu í sveitarfélaginu og að skipuleggja hringrásarsamfélag og græna iðngarða…Lesa meira

true

Kári og ÍA komnir í 32-liða úrslit í Mjólkurbikarnum

Fjórðu deildar lið Árborgar og Kári sem leikur í þriðju deild í sumar áttust við á skírdag í 2. umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu og var leikurinn á Selfossi. Borgnesingurinn Hilmar Elís Hilmarsson kom Kára strax yfir á 3. mínútu og Sigurjón Logi Bergþórsson bætti við öðru marki fyrir Kára eftir tuttugu mínútna leik. Hilmar…Lesa meira