
Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga
Innviðaráðuneytið býður kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufunda um hinsegin málefni í byrjun maí. Samtökin ´78 sjá um fræðsluna en markmiðið er auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks. Þetta er í annað sinn sem fræðslufundir af þessu tagi eru haldnir en það var fyrst gert í nóvember á síðasta ári. Verkefnið er liður í aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022-2025 en þar segir m.a. að hinsegin fólk þurfi að eiga greiða leið að þjónustu í sínu nærumhverfi. Þjónusta og viðmót eigi að vera laus við fordóma og mismunun, en slíkt gæti stafað af þekkingaskorti þeirra sem þjónustuna veita. Því sé mikilvægt að efla þekkingu kjörinna fulltrúa og starfsfólks sveitarfélaga sem sinna þjónustu við almenning.
Fræðslan fer fram á fjarfundi í gegnum Teams og er um klukkustundarlöng. Allir kjörnir fulltrúar og starfsfólk sveitarfélaga geta skráð sig í gegnum slóð á vef Stjórnarráðsins. Í boði eru tvær tímasetningar: þriðjudagurinn 2. maí kl. 16 og miðvikudagurinn 3. maí kl. 16