
„Þetta er bara lífið“
Kristín Benediktsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum og man eftir að hafa séð Surtseyjargosið úr flugvél aðeins tveggja ára gömul. Nú býr hún í Stykkishólmi. Blaðamaður Skessuhorns heimsótti þessa lífsreyndu konu og spjallið var innihaldsríkt. Kristín býr ásamt eiginmanni sínum, Gesti Hólm Kristinssyni, í óvenjulegu húsi sem á sér samfélagslega sögu. Það gegndi áður hlutverki sundlaugar staðarins, en þau hafa gert það upp frá grunni og útbúið sér fallegt heimili. Í forstofunni má sjá minjar um þessa sögu því þau hafa látið afgreiðslulúgu sundstaðarins halda sér, en að baki hennar er nú gestasnyrting. „Svefnherbergið okkar er í karlaklefanum,“ segir Kristín. „Eldhúsið og stofan eru þar sem áður var kvennaklefi. Hérna lærðu krakkarnir mínir að synda á sínum tíma og svo vill til að Gestur og vinur hans voru síðustu sundlaugargestirnir hérna.“ Á hlaðinu bíður báturinn Hólmarinn SH 114 þolinmóður eftir vorinu. „Maðurinn minn er jú trillukarl,“ segir Kristín.