
Byrjunarlið Kára sem vann sigur á Árborg í Mjólkurbikarnum. Ljósm. FB síða Kára.
Kári og ÍA komnir í 32-liða úrslit í Mjólkurbikarnum
Fjórðu deildar lið Árborgar og Kári sem leikur í þriðju deild í sumar áttust við á skírdag í 2. umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu og var leikurinn á Selfossi. Borgnesingurinn Hilmar Elís Hilmarsson kom Kára strax yfir á 3. mínútu og Sigurjón Logi Bergþórsson bætti við öðru marki fyrir Kára eftir tuttugu mínútna leik. Hilmar Elís var svo aftur á ferðinni fjórum mínútum fyrir hálfleik og Káramenn í ansi góðri stöðu. Það var síðan ekki fyrr en á þriðju mínútu í uppbótartíma sem heimamenn í Árborg skoruðu mark en það breytti engu. Lokatölur 1-3 Kára í vil og þeir þar með komnir í 32-liða úrslit.