
Gísli Kristófersson fjárfestir og eigandi hússins, Jóhanna Halla Hallsdóttir forstöðumaður hjá LMÍ, Gunnar Haukur Kristinsson forstjóri, Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra, Haraldur Benediktsson verðandi bæjarstjóri Akraneskaupstaðar og Magnús Guðmundsson rekstrarstjóri umhverfis- orku-, og loftlagsráðuneytisins. Ljósm. sþ.
Landmælingar undirbúa flutning í nýjar höfuðstöðvar á Akranesi
Skrifstofur Landmælinga Íslands hafa undanfarin ár verið til húsa að Stillholti 16-18 á Akranesi en stofnunin stendur nú í framkvæmdum á Smiðjuvöllum 28 þar sem nýjar höfuðstöðvar munu koma til með að verða opnaðar á næstu mánuðum. Nýtt fyrirkomulag verður á nýju skrifstofunum en húsnæðið er einnig töluvert minna en það gamla. Nýtt fyrirkomulag verður með þeim hætti að allt starfsfólk stofnana sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið geta starfað í rýminu og ýtir nýtt fyrirkomulag þannig undir störf án staðsetninga.