
Kjartan Þór ráðinn leiðtogi Hringrásarsamfélagsins í Reykhólahreppi
Kjartan Þór Ragnarsson hefur verið ráðinn í starf leiðtoga Hringrásarsamfélagsins í Reykhólahreppi en það er verkefni sem áður hét Grænir iðngarðar á Reykhólum. Markmið verkefnisins er að skapa ramma um auðlindamál Reykhólahrepps, að koma á samkomulagi á milli sveitarfélagsins, Þörungaverksmiðjunnar, Orkubús Vestfjarða og ríkisins um auðlindanýtingu í sveitarfélaginu og að skipuleggja hringrásarsamfélag og græna iðngarða í Reykhólahreppi.