ÍA og Kári fengu Keflavík og Þór í Mjólkurbikarnum

Í hádeginu í dag var dregið í 32-liða úrslit í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu og fór drátturinn fram í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Tvö Vesturlandslið voru í pottinum og voru ágætlega heppin með mótherja. Skagamenn fengu útileik á móti Bestu deildar liði Keflavíkur og verður sá leikur miðvikudaginn 19. apríl í Nettóhöllinni í Reykjanesbæ og hefst klukkan 19.15. Kári sem leikur í þriðju deild í sumar fékk heimaleik gegn Þór Akureyri sem leikur í Lengjudeildinni eins og ÍA. Sá leikur fer fram daginn eftir á sumardaginn fyrsta í Akraneshöllinni og hefst klukkan 16.

ÍA og Kári fengu Keflavík og Þór í Mjólkurbikarnum - Skessuhorn