Fréttir

true

Skessuhorn keppir í Spurningakeppni fjölmiðlanna

Spurningakeppni fjölmiðlanna hefst í dag klukkan 16, á Bylgjunni. Þar mætast 16 fjölmiðlar í útsláttarkeppni sem Björn Teitsson stýrir. 16 liða úrslitin hefjast í dag en keppnin heldur svo áfram á sama tíma á morgun. Undanúrslit og úrslitaviðureignin fara fram á Páskadag, einnig klukkan 16. Í ár tekur Skessuhorn þátt í spurningakeppninni í fyrsta sinn.…Lesa meira

true

Úr safni: „Ég ætlaði bara að stoppa eitt ár í Borgarnesi“

Yfir Páskahátíðina munu birtast gömul viðtöl úr smiðju Skessuhorns sem aldrei hafa birst á vefnum í heild. Viðtal þetta birtist í jólablaði Skessuhorns,18. desember 2019. Rætt var við hjónin Sigurgeir Erlendsson og Önnubellu Albertsdóttur um rekstur Geirabakarís en þau seldu bakaríið í mars 2023. Sigurgeir Erlendsson, eða Geiri bakari eins og hann er oftast kallaður,…Lesa meira

true

Gamlar gersemar rata á vefinn um páskana

Yfir páskahátíðina kveikir vefurinn skessuhorn.is líf í gömlum glæðum. Í safni Skessuhorns er ýmsar gersemar að finna og verður vefurinn, yfir hátíðina, fylltur af eldra efni, ógleymanlegum viðtölum og sögum sem enn lifa góðu lífi. Það efni hefur aldrei áður birst á vefnum í heild, en er að finna í tölublöðum fyrri ára. Við vonum…Lesa meira

true

Ný reglugerð dregur úr umfangi íbúakosninga sveitarfélaga

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur staðfest nýja reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga sem gert er að stuðla að öruggri framkvæmd íbúakosninga á vegum sveitarfélaga. Reglugerðin mælir fyrir um þær lágmarkskröfur sem gerðar eru til framkvæmda íbúakosninga sem fram fara á vegum sveitarfélaga á grundvelli sveitarstjórnarlaga, en það getur verið 1) Kosning í nefnd fyrir hluta sveitarfélags, 2)…Lesa meira

true

Tvær síðustu deildirnar á Garðaseli opnaðar

Miðvikudaginn 29. mars síðastliðinn afhentu verktakar tvær síðustu deildirnar á nýja leikskólanum Garðaseli við Asparskóga á Akranesi. Þar með hafa allar deildir skólans verið afhentar. Af því tilefni buðu verktakar þeim sem hafa komið að framkvæmdinni að hittast í leikskólanum þar sem fram fór formleg afhending. Sjammi ehf. sá um uppsteypu og ytri frágang, E.…Lesa meira

true

Sveitarfélagið Stykkishólmur prentar Helstu fréttir

Í Stykkishólmi hefur nú verið komið á fót tilraunaverkefni sem felst í því að mánaðarlega verður gefið út prentrit sem hefur að geyma allar helstu fréttir af vefsíðu sveitarfélagsins. Segir í tilkynningu á vef Stykkishólmsbæjar að ákveðið hafi verið að fara af stað með þetta verkefni því ákall hafi verið um að bæta þyrfti upplýsingaflæði…Lesa meira

true

Björn Sólmar og Viktor Már taka við Skallagrími

Björn Sólmar Valgeirsson og Viktor Már Jónasson hafa verið ráðnir þjálfarar meistaraflokks Skallagríms fyrir sumarið 2023. Þeir Björn Sólmar og Viktor Már taka við liðinu af Declan Redmond og Viktori Inga Jakobssyni sem stjórn knattspyrnudeildar Skallagríms hafði ráðið sem þjálfara meistaraflokks fyrr í vetur. Á þjálfaraferlinum hefur Björn Sólmar þjálfað bæði meistaraflokk kvenna hjá Víkingi…Lesa meira

true

Lögreglan á Vesturlandi rafbílavæðist

Í gær, þriðjudaginn 4. apríl, kom Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku- og loftlagsráðherra í heimsókn á Vesturland. Heimsóknin byrjaði á lögreglustöðinni í Borgarnesi þar sem nýr rafbíll var tekinn í notkun hjá embætti Lögreglunnar á Vesturlandi. Bíllinn er að gerðinni Tesla Y og hefur nú þegar sést til hans á ferð um Borgarnes og nágrenni.…Lesa meira

true

Verðlagsnefnd hækkar lágmarksverð mjólkur til bænda

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 1. apríl 2023: – Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 4,33%, úr 119,77 kr./ltr í 124,96 kr./ltr. Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 12. apríl 2023: – Heildsöluverð mjólkur…Lesa meira

true

Sundmenn ÍA gerðu góða hluti á Íslandsmótinu í 50 metra laug

179 sundmenn frá 18 félögum tóku þátt á Íslands- og unglingameistaramóti í 50 metra laug í sundi sem fram fór í Laugardalslaug um síðustu helgi. Alls tóku níu sundmenn frá ÍA þátt í mótinu en það voru þau Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, Íris Arna Ingvarsdóttir, Sunna Dís Skarphéðinsdóttir, Viktoria Emilia Orlita. Enrique Snær…Lesa meira