
Gamlar gersemar rata á vefinn um páskana
Yfir páskahátíðina kveikir vefurinn skessuhorn.is líf í gömlum glæðum. Í safni Skessuhorns er ýmsar gersemar að finna og verður vefurinn, yfir hátíðina, fylltur af eldra efni, ógleymanlegum viðtölum og sögum sem enn lifa góðu lífi. Það efni hefur aldrei áður birst á vefnum í heild, en er að finna í tölublöðum fyrri ára. Við vonum að þið hafið gaman af.
Gleðilega páska!