
1. tölublað er hægt að nálgast í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Stykkishólms og á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi. PDF útgáfa ritsins er aðgengileg á vef sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið Stykkishólmur prentar Helstu fréttir
Í Stykkishólmi hefur nú verið komið á fót tilraunaverkefni sem felst í því að mánaðarlega verður gefið út prentrit sem hefur að geyma allar helstu fréttir af vefsíðu sveitarfélagsins. Segir í tilkynningu á vef Stykkishólmsbæjar að ákveðið hafi verið að fara af stað með þetta verkefni því ákall hafi verið um að bæta þyrfti upplýsingaflæði til þess hóps fólks sem ekki notar tölvur.