Marg innsiglaðir kjörkassar. Ljósm. Úr safni

Ný reglugerð dregur úr umfangi íbúakosninga sveitarfélaga

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur staðfest nýja reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga sem gert er að stuðla að öruggri framkvæmd íbúakosninga á vegum sveitarfélaga. Reglugerðin mælir fyrir um þær lágmarkskröfur sem gerðar eru til framkvæmda íbúakosninga sem fram fara á vegum sveitarfélaga á grundvelli sveitarstjórnarlaga, en það getur verið 1) Kosning í nefnd fyrir hluta sveitarfélags, 2) Atkvæðagreiðsla um einstök málefni sveitarfélags, 3) Atkvæðagreiðsla um sameiningar sveitarfélaga.

Ný reglugerð dregur úr umfangi íbúakosninga sveitarfélaga - Skessuhorn