
Í dag, laugardag, mun flest af því björgunarfólki sem hélt í vikunni til Austfjarða til aðstoðar heimafólki, halda heim á leið. Þeir sem nú snúa heim voru meðal annars aðgerðastjórnendur, öryggisstjórar, undanfarar, hundateymi og almennt björgunarfólk. Þetta björgunarfólk kom meðal annars frá Höfn, Hellu, Vestmannaeyjum, Laugarvatni, Eyrarbakka, Hveragerði, Grindavík, Akranesi, Hnífsdal, Ísafirði, Skagaströnd, úr Skagafirði,…Lesa meira








