Björgvin Hafþór var með 14 stig og 10 fráköst á móti Sindra. Ljósm. glh

Skallagrímur skellti Sindra í hörkuleik

Sindri og Skallagrímur áttust við í fyrsta leik í undanúrslitum úrslitakeppni 1. deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin á Höfn. Mikil barátta einkenndi fyrsta leikhluta og nánast jafnt á öllum tölum. Eftir fimm mínútna leik var staðan 12:11 Sindra í vil og á síðustu mínútunni var enn mjótt á munum, 22:21, en Guillermo Daza sá til þess að Sindri hafði fjögurra stiga forskot þegar hann setti niður þrist, staðan 25:21 fyrir heimamönnum. Sindri hafði ávallt frumkvæðið í öðrum leikhluta og Skallarnir voru nánast alltaf að elta. Mest náði Sindri ellefu stiga forystu eftir tæpan sex mínútna leik, 52:41, og fór inn í hálfleikinn með gott forskot, staðan 56:47 fyrir Sindra.

Skallagrímur skellti Sindra í hörkuleik - Skessuhorn