Útgáfu Fréttablaðsins hætt og sömuleiðis útsendingum Hringbrautar

Útgáfufélagið Torg hefur ákveðið að hætta útgáfu Fréttablaðsins og sömuleiðis að hætta útsendingum sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá útgáfufélaginu Torgi á vef Fréttablaðsins. Áfram mun Fjölmiðlatorg ehf. halda úti dv.is og hringbraut.is sem og Iceland Magazine.

„Ástæður þess að rekstur Fréttablaðsins gengur ekki upp eru margvíslegar,“ segir í tilkynningu Torgs. „Að hluta til er um óheppni að ræða og að hluta er um að ræða óviðráðanlega þróun þar sem útgáfa fjölmiðla á pappír hefur látið hratt undan síga víða um heim, ekki síður en hér á landi. Stafrænir fjölmiðlar eru smám saman að taka yfir. Þá er rekstrarumhverfi einkarekinna miðla á Íslandi óboðlegt. Ekki er um annað að ræða en að horfast í augu við þessar staðreyndir.“

Fréttablaðið hefur komið út sem fríblað í 22 ár og var um tíma eitt mest lesna blað landsins. Með tilkomu vefmiðla fór heldur að draga úr lestrinum og í janúar var ákveðið að dreifa blaðinu ekki lengur í hús á þéttbýlisstöðum eins og gert hafði verið. Við það hrundi lestur blaðsins og dró úr auglýsingasölu. „Stjórnendur útgáfunnar hafa sannarlega leitað allra leiða til að finna henni viðunandi rekstrargrundvöll til framtíðar, en án árangurs. Stjórn félagsins harmar þessi málalok,“ segir í tillkynningunni. Þá er einnig gagnrýnt að stjórnmálamönnum hafi ekki tekist að færa fjölmiðlamarkaðinn yfir í sanngjarnt og eðlilegt horf með því að taka RÚV af auglýsingamarkaði. „Öll slík fyrirheit hafa verið svikin og ekkert bendir til að breyting verði á,“ segir í tilkynningu Torgs.

Fjölmiðlum hefur fækkað mjög á síðustu vikum. Sjónvarpsstöðin N4 hætti eins og kunnugt er rekstri í ársbyrjun og þá var Kjarninn sameinaður Stundinni undir nafninu Heimildin. Nú bætist Fréttablaðið og Hringbraut við þá fjölmiðla sem týnt hafa tölunni.

Útgáfu Fréttablaðsins hætt og sömuleiðis útsendingum Hringbrautar - Skessuhorn