
Dósamóttaka Öldunnar hættir og greiðir tvöfalt fyrir dósir í dag
Á fundi byggðarráðs nýverið var tekin sú ákvörðun að hætta starfsemi dósamóttöku nú um mánaðamótin í húsnæði Öldunnar við Sólbakka 4 í Borgarnesi. Starf Öldunnar samanstendur af vinnustofu/hæfingu annars vegar og dósamóttöku hins vegar. Í fundargerðinni segir: „Starfsfólk Öldunnar starfar nú jafnframt hjá fyrirtækjum og stofnunum víða í sveitarfélaginu. Það heyrir til undantekninga á landsvísu að starfsfólk vinnustaða fólks með skerta starfsgetu starfi við móttöku dósa. Byggðarráð styður því að Aldan segi sig frá núverandi fyrirkomulagi við móttöku dósa tafarlaust.“
Á fundinum var síðan ákveðið í tilefni þessarar ákvörðunar að hafa lokadag í Öldunni fyrir dósamóttöku í dag á milli klukkan 13-16. Ekki nóg með það því allir þeir sem koma með áldósir og plast- og/eða glerflöskur í dag fá borgað tvöfalt skilagjald, eða 32 krónur fyrir hverja einingu, í staðinn fyrir 16 krónur annars. Það er því um að gera að drífa sig niður í geymslu, henda í poka og koma með þetta í Ölduna í dag þar sem vel verður tekið á móti fólki.
Að lokum má geta þess að auki verður boðið upp á kökur og kræsingar frá Geirabakarí og drykki og nammi frá JGR heildverslun. Þá verður fyrrum Borgnesingurinn DJ Maggi Mix á staðnum og spilar stuðtónlist eins og honum er einum lagið og skellir kannski í lagið Borgarnes er Happiness. Góða skemmtun!