Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri, Elísabet Ragnarsdóttir sjúkraþjálfari og þær Margrét Gísladóttir og Kristrún Líndal Gísladóttir frá Eðnu við afhendinguna. Ljósm. vaks

Lionsklúbburinn Eðna færði Höfða gjöf

Félagar í Lionsklúbbnum Eðnu á Akranesi færðu Höfða; hjúkrunar- og dvalarheimili svokallað Power Medic Lazer tæki að gjöf seinni partinn í gær og fór afhendingin fram í sjúkraþjálfun Höfða sem nefnist Hamar. Tækið kostar um hálfa milljón króna og er góð viðbót í tækjakost sjúkraþjálfunarinnar.

Lionsklúbburinn Eðna færði Höfða gjöf - Skessuhorn