
Ljótu hálfvitarnir með útgáfutónleika í Akranesvita í kvöld
Síðustu vikur hefur norðlenska hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir staðið í ströngu við upptökur á nýjustu plötu sveitarinnar sem nefnist Brennið þið vitar. Nú telja og vita Ljótu hálfvitarnir að þeir hafi nægilegt loft í belgnum til að svífa í sjálft höfuðvígi sjálfsöryggisins. Þess vegna hafa þeir ákveðið að halda útgáfutónleika í Akranesvita til að fagna þessum tímamótum enda vel við hæfi miðað við nafn hljómsveitarinnar og nýju plötunnar.
Að sögn Baldurs Ragnarssonar söngvara kom hugmyndin upp á heimili hans við Brekkubraut en hann er nýfluttur á Skagann ásamt fjölskyldu sinni. „Það er vita mál að Akranesviti hefur síðustu ár verið að sanna sig sem hinn besti tónleikastaður og við viljum taka þátt í því. Við vitum að það gæti orðið þröng á þingi í vitanum enda erum við ein af fjölmennustu hljómsveitum landsins. Samt höfum við ákveðið að kýla á þetta og hlökkum virkilega til að hitta sem flesta hálfvita og aðra aðdáendur.“
Ljótu hálfvitarnir gáfu út sína fyrstu plötu árið 2007 og hétu fyrstu fjórar plötur sveitarinnar allar Ljótu hálfvitarnir. Síðan kom Hrísey út árið 2015, Hótel Edda 2020 og nú Brennið þið vitar. Vinsælustu lög sveitarinnar eru Sonur hafsins, Bjór, meiri bjór og Lukkutröll. Baldur segir að lokum að eitt lag á nýju plötunni sé líklegt til vinsælda en það nefnist Að vita eða vita ekki og verður það frumflutt á tónleikunum í kvöld sem hefjast klukkan 21. Frítt er inn á tónleikana vitanlega og ekkert vit í öðru en að mæta með gleðina að vopni.