
Ýmsar götur á Akranesi fá ný nöfn
Nú í vikunni hófst átak á Akranesi við merkingar á götum. Þá verður ýmsum götum, sem ekki hétu neitt áður, gefin nöfn og þær merktar. Nokkrar götur verða auk þess endurskírðar. Eitt af síðustu verkum Sævars Freys Þráinssonar fráfarandi bæjarstjóra í embætti var að hrinda verkefninu í gang. Nú hefur áður ónefnd tengigata, sem liggur á milli Garðabrautar og niður á Jaðarsbraut, fengið nafnið Skessuhornsbraut í tilefni þess að samnefnt fyrirtæki er við götuna og varð 25 ára nýverið. Verkefnið hófst með formlegum hætti þegar Sævar Freyr braut kampavínsflösku á staurnum þar sem skilti með heiti Skessuhornsbrautar hefur verið sett upp.
Ný götuheiti verða flest með tilvísun í eldri fyrirtæki í bæjarfélaginu. Skagabraut mun til dæmis hér eftir heita Einarsbúðarbraut, tengigata við Bifreiðastöð ÞÞÞ heitir Þórðar-Þ gata og Bakkatún verður Baaderstún. Búið er að koma upp merkingum við allar þessar götur. Til stendur einnig að breyta götuheitinu Skólabraut í Kirkjubraut en sú síðarnefnda fær nafnið Nínubraut. Þessar breytingar þykir rétt að gera í ljósi þess að enginn skóli er nú við Skólabraut og engin kirkja við Kirkjubraut. Nánari upplýsingar um götuheiti og breytingar sem ákveðnar hafa verið er að finna í fundargerð á vef Akraneskaupstaðar.