Fréttir

true

Skallagrímur enn á sigurbraut

Skallagrímur vann sinn sjötta leik í röð í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi þegar þeir tóku á móti botnliði Þórs frá Akureyri sem hefur aðeins náð einum sigurleik í 22 leikjum í vetur. Það var vel mætt í Fjósið í Nesinu, yfir 200 áhorfendur á pöllunum enda skynja stuðningsmenn spennuna yfir því að…Lesa meira

true

Snæfell vann stórsigur á KR

Lið Snæfells og KR áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Fyrsti fjórðungur var frekar jafn en lítið skorað og Snæfell með fjögurra stiga forystu, 16:12, þegar honum lauk. En það var í öðrum leikhluta sem heimakonur gerðu nánast út um leikinn því í stöðunni…Lesa meira

true

Skagamenn með sterkan sigur á Selfossi

Selfoss og ÍA mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Vallaskóla á Selfossi. Í fyrsta leikhluta var jafnt á flestum tölum, liðin skiptust á að ná forystu og mest var forysta heimamanna fimm stig eftir rúman sjö mínútna leik, 16:11. Síðustu mínúturnar náði ÍA að svara aðeins fyrir…Lesa meira

true

Markaregn í leik ÍA og Fjölnis

ÍA og Fjölnir mættust í fyrsta leik í riðli 1 í C deild kvenna í Lengjubikarnum á miðvikudagskvöldið og var leikurinn í Akraneshöllinni. Alda Ólafsdóttir kom Fjölni yfir eftir hálftíma leik en undir lok fyrri hálfleiks jafnaði Unnur Ýr Haraldsdóttir metin fyrir ÍA áður en Róberta Lilja Ísólfsdóttir kom heimakonum yfir og staðan í hálfleik…Lesa meira

true

Skæð fuglaflensa enn að breiðast út

Hið skæða afbrigði fuglaflensu, sem geisað hefur í Evrópu síðan haustið 2021, heldur áfram að breiðast út. Það hefur valdið dauða fjölda villtra fugla og miklu tjóni í alifuglarækt víða um heim. Matvælastofnun vill vekja athygli á að enn er hæsta viðbúnaðarstig vegna fuglaflensu í gildi hér á landi og sérstakar reglur um sóttvarnir í…Lesa meira

true

Heldur dregur úr atvinnuleysi

Atvinnuleysi var 3,1% í janúar 2023 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands og dróst saman um 0,1 prósentustig á milli mánaða. Hlutfall atvinnulausra 16-24 ára var 8,5% og 2,1% hjá 25-74 ára. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 81,1% í janúar 2023 og hlutfall starfandi 78,6%, hlutfall starfandi jókst um 1,1 prósentustig milli mánaða.Lesa meira

true

Snæfell tapaði á móti Tindastól

Tindastóll og Snæfell áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik á miðvikudagskvöldið og fór leikurinn fram í Síkinu á Sauðárkróki. Snæfellskonur höfðu lengst af frumkvæðið í fyrsta leikhluta og náðu mest níu stiga forystu, 10:19, þegar klukkan sýndi rúmlega sex mínútur. Skömmu síðar náði Tindastóll að laga stöðuna þegar þær skoruðu átta stig í…Lesa meira

true

Úkraínskt flóttafólk á íslenskum vinnumarkaði – ár í dag frá innrás Rússa

„Vel hefur gengið að aðstoða flóttafólk frá Úkraínu við að komast út á vinnumarkað hér á landi. Yfir 800 flóttamenn frá Úkraínu hafa fengið atvinnuleyfi hér á landi frá innrás Rússlands í Úkraínu 24. febrúar 2022,“ segir í tilkynningu frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Í dag er eitt ár liðið frá innrásinni. Fyrsta flóttafólkið frá Úkraínu…Lesa meira

true

Ákvörðun um að loka Laugargerðisskóla kemur foreldrum á óvart

Foreldrafélag Laugargerðisskóla fundaði í gær um þá ákvörðun sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps að skólanum yrði lokað vorið 2023. Ítarlega var fjallað um þá ákvörðun í Skessuhorni vikunnar. Segir í ályktun sem stjórn foreldrafélagsins sendi á sveitarstjórn, og Skessuhorn fékk afrit af, að stjórnin hafi talið mikilvægt að hitta foreldra sem fyrst eftir að þessar fréttir…Lesa meira

true

Jarfi var besta nautið fætt 2016

Viðurkenning Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands, fyrir besta nautið í árgangi 2016, var veitt á Búgreinaþingi kúabænda sem lauk í gær. Á vef RML er greint frá því að besta nautið í árgangi 2016 var valið Jarfi 16016 frá Helgavatni í Þverárhlíð í Borgarfirði. Ræktendur Jarfa 16016 eru Ágústa Ó. Gunnarsdóttir, Karitas Þ. Hreinsdóttir, Pétur og Vilhjálmur…Lesa meira