Jalen Dupree átti góðan leik á móti Selfossi. Hér í leik gegn liði Hamars fyrr í vetur. Ljósm Jónas H. Ottósson

Skagamenn með sterkan sigur á Selfossi

Selfoss og ÍA mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Vallaskóla á Selfossi. Í fyrsta leikhluta var jafnt á flestum tölum, liðin skiptust á að ná forystu og mest var forysta heimamanna fimm stig eftir rúman sjö mínútna leik, 16:11. Síðustu mínúturnar náði ÍA að svara aðeins fyrir sig og var með tveggja stiga forskot þegar leikhlutanum lauk, 20:22. Skagamenn skoruðu fyrstu fjögur stigin í öðrum leikhluta en heimamenn komu sér síðan hægt og rólega inn í leikinn og höfðu þriggja stiga forystu þegar flautað var til hálfleiks, 40:37.

Skagamenn með sterkan sigur á Selfossi - Skessuhorn