Frá afhendingu viðurkenningarinnar fyrir Jarva. F.v. Sveinbjörn Eyjólfsson, Pétur Diðriksson, Karitas Þ. Hreinsdóttir og Herdís Magna Gunnarsdóttir. Ljósm. rml/ Guðrún Björg Egilsdóttir.

Jarfi var besta nautið fætt 2016

Viðurkenning Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands, fyrir besta nautið í árgangi 2016, var veitt á Búgreinaþingi kúabænda sem lauk í gær. Á vef RML er greint frá því að besta nautið í árgangi 2016 var valið Jarfi 16016 frá Helgavatni í Þverárhlíð í Borgarfirði. Ræktendur Jarfa 16016 eru Ágústa Ó. Gunnarsdóttir, Karitas Þ. Hreinsdóttir, Pétur og Vilhjálmur Diðrikssynir á Helgavatnsbúinu og tóku þau Karitas og Pétur við viðurkenningunni úr höndum Herdísar Mögnu Gunnarsdóttur, fráfarandi formanns deildar kúabænda, og Sveinbjörns Eyjólfssonar, forstöðumanns Nautastöðvarinnar.

Jarfi var besta nautið fætt 2016 - Skessuhorn