Fyrirliðinn Rebekka Rán skilaði 11 stigum í sigrinum á móti KR. Ljósm. af FB síðu Snæfells.

Snæfell vann stórsigur á KR

Lið Snæfells og KR áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Fyrsti fjórðungur var frekar jafn en lítið skorað og Snæfell með fjögurra stiga forystu, 16:12, þegar honum lauk. En það var í öðrum leikhluta sem heimakonur gerðu nánast út um leikinn því í stöðunni 22:16 skoruðu þær alls 17 stig á tæpum sjö mínútna kafla án nokkurs svars frá gestunum sem misstu boltann trekk í trekk og hittu eins og gefur að skilja alls ekki neitt. Frábær sóknarleikur Snæfells og enn betri varnarleikur skilaði þeim 23 stiga forskoti þegar flautað var til hálfleiks, staðan 39:16 Snæfelli vel í vil.

Snæfell vann stórsigur á KR - Skessuhorn