
Snæfell og KR mætast í kvöld í uppgjöri liðanna í 3. og 4. sæti deildarinnar. Ljósm. sá
Snæfell tapaði á móti Tindastól
Tindastóll og Snæfell áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik á miðvikudagskvöldið og fór leikurinn fram í Síkinu á Sauðárkróki. Snæfellskonur höfðu lengst af frumkvæðið í fyrsta leikhluta og náðu mest níu stiga forystu, 10:19, þegar klukkan sýndi rúmlega sex mínútur. Skömmu síðar náði Tindastóll að laga stöðuna þegar þær skoruðu átta stig í röð og staðan 24:25. Í öðrum leikhluta var jafnræði með liðunum framan af en í stöðunni 36:36 náði Tindastóll níu stigum í röð og fóru með gott forskot inn í hálfleikinn, staðan 45:36.