
Ákvörðun um að loka Laugargerðisskóla kemur foreldrum á óvart
Foreldrafélag Laugargerðisskóla fundaði í gær um þá ákvörðun sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps að skólanum yrði lokað vorið 2023. Ítarlega var fjallað um þá ákvörðun í Skessuhorni vikunnar. Segir í ályktun sem stjórn foreldrafélagsins sendi á sveitarstjórn, og Skessuhorn fékk afrit af, að stjórnin hafi talið mikilvægt að hitta foreldra sem fyrst eftir að þessar fréttir bárust enda væru þær mikið áfall fyrir foreldra, börn og starfsmenn skólans. Jafnframt segir að sveitarstjórn hafi verið boðið til þessa fundar en ekki séð sér fært að mæta og eiga samtal.