
Skallagrímur enn á sigurbraut
Skallagrímur vann sinn sjötta leik í röð í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi þegar þeir tóku á móti botnliði Þórs frá Akureyri sem hefur aðeins náð einum sigurleik í 22 leikjum í vetur. Það var vel mætt í Fjósið í Nesinu, yfir 200 áhorfendur á pöllunum enda skynja stuðningsmenn spennuna yfir því að liðið er á góðri vegferð og hefur tryggt sér sæti í úrslitakeppninni sem hefst seint í mars. Skallagrímsmenn sýndu það fljótlega í leiknum að þeir ætluðu sér enn einn sigurinn og komust í 17:7 eftir rúmar sex mínútur. Þegar flautað var til loka fyrsta leikhluta var nánast helmings munur á liðunum, staðan 26:14 Skallagrími í vil. Í öðrum leikhluta skoruðu liðin jafnmörg stig eða 22 en mest náðu Skallarnir 18 stiga forskoti áður en gestirnir settu niður síðustu fjögur stigin, hálfleikstölur 48:36.