Fréttir

true

Keilufólk á RIG og öldungamóti

Reykjavíkurleikarnir, RIG, kláruðust 2. febrúar síðastliðinn og átti ÍA nokkra keppendur þar í keilu. Helgina 21. og 22. janúar var spilað Early Bird sem er einskonar forkeppni á RIG og þar gerði Matthías Leó Sigurðsson sér lítið fyrir og setti fimm Íslandsmet í flokki U16. Hann setti met í 2, 3, 4, 5 og 6…Lesa meira

true

Íslenska arnarstofninum stafar ógn af skyldleikaæxlun

Íslenski arnarstofninn einkennist af skyldleikaæxlun og er erfðafræðilega einsleitur. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í glænýrri vísindagrein hóps evrópskra fræðimanna, sem birtist í vísindaritinu Molecular Ecology og skrifað er um á vef Náttúrustofu Vesturlands. Verkefnið var unnið undir stjórn sérfræðinga við Háskóla Íslands en sérfræðingar á Náttúrustofu Vesturlands, Náttúrufræðistofnun Íslands og deCODE…Lesa meira

true

„Þú þarft einhvern sem getur sagt þér til og þannig náð árangri“

Rætt við Hjördísi Eyþórsdóttur sem í þrjá áratugi hefur haft bridds að atvinnu Hjördís Eyþórsdóttir er sá Íslendingur sem náð hefur lengst í briddsíþróttinni. Hún hefur nú í nær þrjá áratugi starfað í Ameríku sem atvinnumanneskja í bridds og hefur lifibrauð sitt af því að kenna öðrum íþróttina og keppa við þá á mótum hvort…Lesa meira

true

Þriðjudagslægðin gæti orðið snörp

Þessa dagana gengur hver lægðin af fætur annarri yfir landið í veðrakerfi sem einkennt hefur hinar norðlægu slóðir undanfarna daga. Í dag er sunnan 15-28 m/s og hvassast norðan- og norðvestantil. Gular og appelsínugular viðvaranir eru víðast hvar vegna úrkomu og hvassviðris, en þó er Faxaflóasvæðið með skaplegasta veðrið í dag. Á þriðjudaginn er síðan…Lesa meira

true

Sviptivindasamt í dag á Snæfellsnesi og víðar

„Vegna mikilla sviptivinda í hlýrri sunnanáttinni í dag, allt að 45-50 m/s, getur verið varasamt að vera á ferðinni í dag á Snæfellsnesi, Vestfjörðum og ekki síst á Norðurlandi. Sums staðar eru vegir flughálir að auki,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Nýtt íþróttahús yrði ígildi hallar

Rætt við Jón Egil Jónsson, íþrótta- og tómstundafulltrúa Dalabyggðar Dalamaðurinn Jón Egill Jónsson starfar sem íþrótta- og tómstundafulltrúi Dalabyggðar. Hann er giftur Stefaníu Björgu Jónsdóttur en hún er frá Grindavík og vinnur án staðsetningar heiman frá sem þjónusturáðgjafi hjá Arion banka í Borgarnesi. Saman eiga þau tvö börn, Sigurjón Egil 8 ára og Alexöndru Öglu…Lesa meira

true

Skallagrímur vann nauman sigur í nágrannaslagnum

Skallagrímur og ÍA áttust við í alvöru Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Um 150 manns mættu til að hvetja sín lið ef áhorfendatölur ljúga ekki og urðu vitni að hörkuleik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Það var jafnt á…Lesa meira

true

Ljósmæður á Akranesi – Frumkvöðlar í fæðingahjálp

Vorið 1997 hafði Jónína Ingólfsdóttir yfirljósmóðirin á fæðingadeild Sjúkrahúss Akraness samband við forstjóra Haraldar Böðvarssonar & Co, Harald Sturlaugsson, og innti hann eftir því hvort fyrirtæki hans gæti útvegað fæðingadeildinni fiskikar, en þau voru mikið notuð hjá útgerðinni. Ljósmæðurnar á fæðingadeildinni höfðu hugsað sér að nota karið vegna væntanlegra vatnsfæðinga sem fyrirhugað var að bjóða…Lesa meira

true

N4 komið í þrot

Sjónvarpsstöðin N4 hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra. Tilraunir til að tryggja framtíð fyrirtækisins báru ekki árangur. Þetta kemur fram í færslu á Facebook síðu hins 15 ára fyrirtækis. „Fólkið í landinu hefur verið í brennidepli í allri framleiðslu efnis. N4 hefur varðveitt sögu þjóðarinnar. Þessum kafla í sögu fjölmiðla á Íslandi er…Lesa meira

true

Bjóða Grímshús til leigu en með fyrirvörum

Í auglýsingu í Skessuhorni vikunnar óskar Borgarbyggð eftir umsækjendum um rekstur á Grímshúsi í Brákarey til skemmri eða lengri tíma. Þó er vakin athygli á því að nú stendur yfir vinna við nýtt rammaskipulag fyrir Brákarey sem gæti leitt af sér umbreytingu á skipulagi umhverfis Grímshús og rasks ef til framkvæmda kemur. Það var Grímshússfélagið…Lesa meira