Skallagrímur hafði betur í Vesturlandsslagnum. Ljósm. glh

Skallagrímur vann nauman sigur í nágrannaslagnum

Skallagrímur og ÍA áttust við í alvöru Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Um 150 manns mættu til að hvetja sín lið ef áhorfendatölur ljúga ekki og urðu vitni að hörkuleik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Það var jafnt á flestum tölum í fyrsta leikhluta og liðin skiptust á að ná forystu sem var kannski dæmigert fyrir leikinn því alls gerðist það yfir tuttugu sinnum í leiknum. Þá var alls ellefu sinnum hnífjafnt á með liðunum sem segir meira en mörg orð hve mikið var undir í leiknum. Um tæpan miðjan fyrsta leikhluta var staðan 9:9 og þegar honum lauk var staðan 20:19 Skallagrími í vil eftir að Keith Jordan Jr. hitti úr þriggja stiga stökkskoti fyrir heimamenn rétt undir lokin. Baráttan hélt áfram út um víðan völl í öðrum leikhluta, munurinn var aldrei meiri en þrjú stig þar til Skagamenn tóku góðan kipp í stöðunni 26:26 og skoruðu átta stig í röð, staðan 26:34 fyrir gestina eftir tæpan sex mínútna leik. Skallagrímsmenn sættu sig alls ekki við þetta og komu til baka rétt fyrir hálfleik með síðustu fjórum stigunum, hálfleikstölur 37:40 fyrir ÍA.

Skallagrímur vann nauman sigur í nágrannaslagnum - Skessuhorn