Fréttir

true

Alex Davey semur við ÍA til eins árs

Varnarmaðurinn Alexander Davey, sem hefur leikið með Skagamönnum síðustu tvö ár, hefur gert samning við ÍA sem gildir út tímabilið 2023. Alex er fæddur árið 1994 og hefur leikið alls 28 deildarleiki og skorað tvö mörk fyrir ÍA á þessum tíma. Í byrjun nóvember kom fram í tilkynningu á FB síðu Knattspyrnufélags ÍA að heimild…Lesa meira

true

Heiður fær fjölmörg tilboð frá háskólum í Ameríku

Heiður Karlsdóttir körfuknattleikskona, sem nú spilar með Fjölni í Grafarvogi, hefur samkvæmt heimildum karfan.is fengið tilboð frá 35 skólum í bandaríska háskólaboltanum um námsstyrk og að spila með liðum skólanna. Hún mun þó ekki fara út eftir yfirstandandi tímabil, þar sem að hún á enn eitt ár eftir af framhaldsskóla hérlendis. Samkvæmt heimildum Körfunnar er…Lesa meira

true

Vörslusvipting búfjár vegna veikinda bóndans

Matvælastofnun hefur vörslusvipt bónda á Suðurlandi öllum gripum þar sem engin fékkst til þess að sjá um gripi í veikindum hans. „Vegna veðurfarslegra aðstæðna var ekki hægt að bíða með þessar aðgerðir því vegna dýravelferðar hefði þurft að tryggja gripum aðgengi að vatni og fóðri. Nautgripir og hross voru send til slátrunar en sauðfé og…Lesa meira

true

Frosthörkur verða fram yfir helgi

Veðurstofan spáir því að um helgina verði norðaustan- og austan 5-15 m/s á landinu, en hvassast syðst. Í dag verða lítilsháttar él, en bjartviðri suðvestanlands. Frost verður frá 2 til 16 stig og kaldast í innsveitum á Norðurlandi. Norðaustan og norðan 5-13 m/sek á morgun og léttskýjað, en stöku él á Norður- og Austurlandi. Frost…Lesa meira

true

Íslenskunámskeið að hefjast á Vesturlandi

Símenntun á Vesturlandi vekur athygli á því að íslenskunámskeið fyrir innflytjendur fara að hefjast á Vesturlandi. Næstu námskeið eru eftirfarandi: Íslenska 1b verður kennd í Grundarfirði og hófst fimmtudaginn 12. janúar. Íslenska 2 hefst mánudaginn 16. janúar í Ólafsvík, íslenska 1b í Borgarnesi hefst þriðjudaginn 17. janúar og íslenska 2 á Akranesi hefst mánudaginn 23.…Lesa meira

true

Qair Iceland fær lóð úthlutað á Grundartanga

Í fundargerð hjá umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd í Hvalfjarðarsveit 4. janúar síðastliðinn kemur fram að stjórn Faxaflóahafna hafi veitt hafnarstjóra heimild til þess að undirrita samning við Qair Iceland ehf. um úthlutun lóðarinnar Katanesvegar 30 á Grundartanga fyrir framleiðslu á rafeldsneyti. Í samningsdrögum er gert ráð fyrir að lóðinni verði skipt upp í þrjár…Lesa meira

true

Árið byrjar af krafti í ferðaþjónustu á landsvísu

Ferðakaupstefnan Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verður haldin fimmtudaginn 19. janúar í Kórnum í Kópavogi á milli klukkan 12 og 17. Viðburðurinn er sá fjölmennasti í íslenskri ferðaþjónustu og hefur skipað sér sess sem einn sá allra mikilvægasti í greininni. „Gert er ráð fyrir að fjöldi gesta verði á bilinu 600-800 og því má með sanni segja…Lesa meira

true

Aukinn kraftur settur í leit um helgina

Allt frá því á þriðjudag hefur víðtæk leit staðið yfir í Borgarnesi og nágrenni að Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni, sem ekkert hefur spurst til síðan laugardaginn 7. janúar. Yfir sextíu sjálfboðaliðar björgunarsveita hafa komið að leitinni og við hana notast m.a. við þyrlur Landhelgisgæslunnar, dróna, fjórhjól, báta og önnur tæki og búnað. Auk þess…Lesa meira

true

Rut Berg Guðmundsdóttir nýr aðstoðarskólastjóri

Rut Berg Guðmundsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi en hún tekur við starfinu af Birgi Þórissyni. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Tónlistarskólans. Rut var áður nemandi skólans og útskrifaðist með framhaldspróf á flautu frá skólanum árið 2005. Þá lauk hún B.Mus prófi frá Listaháskóla Íslands árið 2009. Rut hefur kennt við…Lesa meira

true

Aulahúmor og útúrsnúningar af öllu landinu

Ferðabók Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna) á Sögulofti Landnámsseturs Uppistandssýningin „Ferðabók Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna)“ verður frumsýnd á Sögulofti Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi laugardaginn 14. janúar. Forsagan er sú að árið 1752 fengu vísindamennirnir Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson styrk frá danska ríkinu til að rannsaka jarðfræði Íslands, sögu, mannlíf…Lesa meira