Fréttir

true

Fleiri verkefni á sviði ættleiðinga færð til sýslumanns

Tiltekin verkefni á sviði ættleiðinga, sem hingað til hafa verið á verksviði Íslenskrar ættleiðingar, voru færð til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu með nýrri reglugerð um ættleiðingar sem tók gildi 1. október.  Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu kemur fram að meðal breytinga er að nú mun sýslumaður bjóða uppkomnum ættleiddum upp á ráðgjöf einstaklingum að kostnaðarlausu. Í nýju…Lesa meira

true

Foreldrafélag lýsir áhyggjum yfir húsnæðismálum og umferðaröryggi

Stjórn foreldrafélags Brekkubæjarskóla á Akranesi hefur sent opið bréf til bæjarstjórnar og sviðsstjóra hjá Akraneskaupstað. Þar er lýst þungum áhyggjum af húsnæðismálum og umferðaröryggi umhverfis Brekkubæjarskóla: „Við foreldrar og forráðamenn barna i Brekkubæjarskóla viljum hér með koma á framfæri áhyggjum okkar af stöðunni í húsnæðismálum skólans sem og umferðaröryggi umhverfis skólann. Við óttumst að slæm…Lesa meira

true

Kynningarfundur um Sundabraut verður í næstu viku á Akranesi

Kynningarfundur um matsáætlun vegna umhverfisáhrifa væntanlegrar Sundabrautar verður haldinn í Tónbergi á Akranesi miðvikudaginn 11. október klukkan 19:30. Þrír sambærilegir kynningarfundir eru haldnir í þessari viku á höfuðborgarsvæðinu. Það er Vegagerðin í samvinnu við Reykjavíkurborg sem vinnur að undirbúningi Sundabrautar.Lesa meira

true

Komin úr slipp og ný lína tekin um borð

Á föstudaginn var áhöfn línubeitningarbátsins Lilju SH í Rifi að gera sig klára til veiða eftir að hafa verið í slipp. Farið var í ýmsar lagfæringar eins og oft vill verða með báta sem róa í allskyns veðrum. Áhöfnin setti nýja línu um borð auk þess sem setja þurfti kör og beitu um borð og…Lesa meira

true

Jól í skókassa til barna í Úkraínu í tuttugasta skipti

Metfjöldi gjafa barst á síðasta ári – 5.575 kassar Verkefnið Jól í skókassa á vegum KFUM og KFUK á Íslandi felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem búa við bágar aðstæður og gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til að öll börnin fái svipaðar jólagjafir eru ákveðnir hlutir sem mælt…Lesa meira

true

Söngvar og aríur um ástir, örlög og bús

Lilja Guðmundsdóttir sópran, Bjarni Thor Kristinsson bassi og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari koma fram á fyrstu tónleikum haustsins hjá Kalman listafélagi í Vinaminni á Akranesi fimmtudaginn 5. október nk. kl. 20. Yfirskrift tónleikanna er ,,Ástir og drykkja – söngvar og aríur um ástir, örlög og bús“ en þar flytja þau söngdagskrá sem samanstendur af íslenskum…Lesa meira

true

Myndir af bátunum prýða veggi veiðarfærageymslanna

Útgerðir bátanna Egils SH og Guðmundar Jenssonar SH í Ólafsvík hafa látið mála myndir af bátum sínum á gafl veiðarfærageymsla útgerða sinna og vekja þær mikla athygli bæjarbúa jafnt sem ferðamanna, enda verkin skemmtilega útfærð. Myndina af Agli SH gerði Anja Jóhannesdóttir en að sögn Jens Brynjólfssonar útgerðaraðila Egils SH á að vísu eftir að…Lesa meira

true

Nýtt fólk til starfa hjá Norðuráli

Norðurál hefur ráðið nýtt fólk í þrjár stöður hjá fyrirtækinu. Það eru þau Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson framkvæmdastjóri öryggis-, umhverfis- og umbótasviðs, Hólmfríður Kristjánsdóttir lögmaður og Sigríður Harðardóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs.   Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson er framkvæmdastjóri öryggis-, umhverfis- og umbótasviðs hjá Norðuráli. Guðlaugur er menntaður efnaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með MSc gráðu í efnaverkfræði frá…Lesa meira

true

Landsnet boðar til fundar um Holtavörðuheiðarlínu 1

„Nýr valkostur til umhverfismats,“ er yfirskrift fundar sem Landsnet hefur boðað til annað kvöld, þriðjudaginn 3. október klukkan 20 á Hótel Hamri í Borgarnesi. „Við bjóðum til fundar og samtals um nýjan valkost vegna Holtavörðuheiðarlínu 1, sem fengið hefur heitið Hallarmúlaleið. Á fundinum verður kynnt greinargerð um nýjan valkost í umhverfismati verkefnisins, tilurð valkostsins, hvernig…Lesa meira

true

Bókasafn Grundarfjarðar 100 ára

Fimmtudaginn 28. september fagnaði Bókasafn Grundarfjarðar 100 ára afmæli. Af því tilefni var boðið til kaffisamsætis í bókasafninu sem er staðsett í Sögumiðstöðinni. Sunna Njálsdóttir bókasafnsvörður fór yfir sögu safnsins áður en hún bauð gestum að gæða sér á gómsætum veitingum. Glæsileg sýning er í Sögumiðstöðinni en þar má sjá marga forvitnilega og merkilega hluti…Lesa meira