Fréttir

true

Formlegar viðræður hafnar um sameiningu HA og Háskólans á Bifröst

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað viljayfirlýsingu við Elínu Díönnu Gunnarsdóttir, starfandi rektor Háskólans á Akureyri og Margréti Jónsdóttur Njarðvík rektor Háskólans á Bifröst, um að hefja formlegar viðræður um samstarf og mögulega sameiningu háskólanna tveggja. „Viðræðurnar munu felast í fýsileikagreiningu á því hvaða samruna- eða samstarfsform henti best til að tryggja…Lesa meira

true

Margir að flýta sér í umferðinni

64 ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. 142 ökumenn voru myndaðir með færanlegri hraðamyndavél. Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur og reyndist annar þeirra einnig vera sviptur ökuréttindum. Afskipti voru höfð af nokkrum ökumönnum vegna notkunar á farsíma undir stýri…Lesa meira

true

„Þetta verður stærsta verkefni Borgarbyggðar fyrr og síðar“

Rætt við Guðveigu Lind Eyglóardóttur forseta sveitarstjórnar Borgarbyggðar – meðal annars um væntanlegt verkefni í Brákarey Guðveig Lind Eyglóardóttir er oddviti Framsóknarflokks í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Í kosningum til sveitarstjórnar vorið 2022 fékk listinn fimm menn kjörna og þar með hreinan meirihluta í sveitarstjórn. Sú niðurstaða kom ýmsum á óvart og kannski ekki síst henni sjálfri…Lesa meira

true

Hátíðarguðsþjónusta í Innri-Hólmskirkju á sunnudaginn

Næsta sunnudag, 8. október, verður hátíðarguðsþjónusta í Innri-Hólmskirkju í Hvalfjarðarsveit þar sem fagnað verður enduropnun kirkjunnar og 130 ára vígsluafmæli sem var á síðasta ári. Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands kemur og predikar við messuna. Viðgerðir á kirkjunni hófust vorið 2021 og gert hefur verið við steypuskemmdir og kirkjan máluð að utan, skipt var nánast…Lesa meira

true

Fuglaflensa í haferni og æðarfugli

Í sýnum sem tekin voru úr haferni sem fannst dauður á skeri úti fyrir Barðaströnd um miðjan september fundust skæðar fuglaflensuveirur af stofni sem hefur ekki greinst hér á landi áður og er ekki algengur, HPAI H5N5. Sýnin voru rannsökuð á Tilraunastöð HÍ að Keldum. “Í dag bárust svo Matvælastofnun upplýsingar frá Keldum um að…Lesa meira

true

Bólusetning gegn HPV nú óháð kyni

Börnum hér á landi í 7. bekk grunnskóla er nú öllum boðin bólusetning gegn HPV veirunni, óháð kyni. Samhliða hefur verið tekið í notkun nýtt og breiðvirkara bóluefni en áður sem veitir víðtækari vörn gegn krabbameinum af völdum veirunnar. Til eru fjölmargar gerðir HPV veira. Margar þeirra valda engum einkennum, aðrar valda kynfæravörtum og nokkrar…Lesa meira

true

Tinna María í starf auglýsingastjóra

Í dag tekur Tinna María Ólafsdóttir við starfi auglýsingastjóra á Skessuhorni. Í starfi hennar felast fjölbreytt samskipti við sístækkandi hóp auglýsenda í blað og á vef. Á sama tíma lætur Díana Ósk Heiðarsdóttir af störfum. Díana Ósk tekur nú við starfi verslunarstjóra hjá Olís í Borgarnesi. Díönu er þakkað vel unnin störf um leið og…Lesa meira

true

Skemmtilegum sumarlestri lokið í Dölum

Héraðsbókasafn Dalasýslu tók upp á því að standa fyrir lestrarátaki yfir sumarið í fyrra og endurtók leikinn í ár. Gefin voru út þrjú bingó-spjöld fyrir mismunandi aldur þ.e. 5-7 ára, 8-9 ára og 10-12 ára. Þátttakendur sóttu spjöldin á bókasafnið fyrir sumarlokun en á hverju spjaldi voru nokkrir reitir sem lýstu aðstæðum eða athöfn sem…Lesa meira

true

Samstöðufundur á laugardaginn til að mótmæla sjókvíaeldi

Í samstarfi við bændur og landeigendur um allt land hafa Landssamband veiðifélaga, Verndarsjóður villtra laxastofna (NASF), Icelandic Wildlife Fund, Landvernd umhverfisverndarsamtök og VÁ – Félag um vernd fjarðar, boðað til samstöðufundar og mótmæla á Austurvelli, laugardaginn 7. október kl. 15:00 til að krefjast þess að stjórnvöld stöðvi sjókvíaeldi hér við land. Á samstöðufundinum munu bændur,…Lesa meira

true

Crossfitstöðin Ægir opnuð á nýjum stað á Akranesi

Um helgina opnaði Crossfitstöðin Ægir á nýjum stað í húsnæði á Breið á Akranesi og er staðsett á ská fyrir aftan Hótel Akranes sem var og hét. Nýja húsnæðið er um 400 fermetrar að stærð en fyrrum húsnæði á Vesturgötu er um 160 fermetrar að stærð svo að um talsverða stækkun er að ræða. Helgi…Lesa meira