Samstöðufundur á laugardaginn til að mótmæla sjókvíaeldi

Í samstarfi við bændur og landeigendur um allt land hafa Landssamband veiðifélaga, Verndarsjóður villtra laxastofna (NASF), Icelandic Wildlife Fund, Landvernd umhverfisverndarsamtök og VÁ - Félag um vernd fjarðar, boðað til samstöðufundar og mótmæla á Austurvelli, laugardaginn 7. október kl. 15:00 til að krefjast þess að stjórnvöld stöðvi sjókvíaeldi hér við land. Á samstöðufundinum munu bændur, landeigendur og náttúruverndarsinnar og aðrir fjölmenna til Reykjavíkur og mótmæla. Þá hefur einnig verið sett af stað undirskriftarsöfnun af hálfu NASF þar sem þess er krafist að ráðamenn bindi enda á sjókvíaeldi á Íslandi; https://nasf.is/syna-studning/

Samstöðufundur á laugardaginn til að mótmæla sjókvíaeldi - Skessuhorn