Félagarnir Gerald Brimir og Helgi Arnar. Ljósm. vaks

Crossfitstöðin Ægir opnuð á nýjum stað á Akranesi

Um helgina opnaði Crossfitstöðin Ægir á nýjum stað í húsnæði á Breið á Akranesi og er staðsett á ská fyrir aftan Hótel Akranes sem var og hét. Nýja húsnæðið er um 400 fermetrar að stærð en fyrrum húsnæði á Vesturgötu er um 160 fermetrar að stærð svo að um talsverða stækkun er að ræða. Helgi Arnar Jónsson er eigandi Ægis ásamt Gerald Brimi Einarssyni og segir hann að þessi nýja aðstaða gerbreyti öllu fyrir þá. „Við getum haldið mun betur utan um starfsemina á þessum nýja stað því það var orðið frekar þröngt um okkur á Vesturgötunni. Við getum núna verið með fólk í hóptímum í gangi og á sama tíma getur fólk komið og æft sjálft í sömu aðstöðu, það er engin truflun og það er mesta breytingin.“

Crossfitstöðin Ægir opnuð á nýjum stað á Akranesi - Skessuhorn