Haförn. Ljósm. úr safni Skessuhorns

Fuglaflensa í haferni og æðarfugli

Í sýnum sem tekin voru úr haferni sem fannst dauður á skeri úti fyrir Barðaströnd um miðjan september fundust skæðar fuglaflensuveirur af stofni sem hefur ekki greinst hér á landi áður og er ekki algengur, HPAI H5N5. Sýnin voru rannsökuð á Tilraunastöð HÍ að Keldum. "Í dag bárust svo Matvælastofnun upplýsingar frá Keldum um að æðarfugl sem fannst dauður á Ólafsfirði fyrir skömmu hafi verið smitaður af sama stofni fuglaflensuveiru. Þessar greiningar undirstrika mikilvægi þess að tryggja góðar sóttvarnir í umgengni við alifugla og aðra fugla í haldi. Matvælastofnun minnir á að tilkynningar frá almenningi um fund á veikum og dauðum villtum fuglum eru lykilatriði í eftirliti með tilvist og útbreiðslu fuglaflensu," segir í tilkynningu frá MAST.

Fuglaflensa í haferni og æðarfugli - Skessuhorn