Svipmynd úr starfi skólans. Ljósm. úr safni/vaks

Foreldrafélag lýsir áhyggjum yfir húsnæðismálum og umferðaröryggi

Stjórn foreldrafélags Brekkubæjarskóla á Akranesi hefur sent opið bréf til bæjarstjórnar og sviðsstjóra hjá Akraneskaupstað. Þar er lýst þungum áhyggjum af húsnæðismálum og umferðaröryggi umhverfis Brekkubæjarskóla:

„Við foreldrar og forráðamenn barna i Brekkubæjarskóla viljum hér með koma á framfæri áhyggjum okkar af stöðunni í húsnæðismálum skólans sem og umferðaröryggi umhverfis skólann. Við óttumst að slæm staða í húsnæðismálum skólans komi niður á velferð og námi barnanna okkar. Nemendur Brekkubæjarskóla hafa síðustu skólaár ekki haft aðgang að list- og verkgreinastofum í skólahúsnæðinu og fyrir liggur að svo verði a.m.k. í tvö ár í viðbót. Við upphaf þessa skólaárs bættist svo heimilisfræðistofan í þennan hóp og síðast íþróttahúsið við Vesturgötu.

Skólinn býr yfir gríðarlegum mannauði sem hefur síðustu misseri staðið frammi fyrir afar krefjandi áskorunum í kennslu og öllu skólastarfi vegna þessa og sér ekki fyrir endann á því.

Við komumst ekki hjá því að vekja einnig athygli á umferðaröryggi við skólann. Skortur á gangbrautum um Háholt sem og þeirri staðreynd að strætóstoppistöð við Brekkubæjarskóla er nánast á gatnamótum Háholts og Vesturgötu. Við teljum staðsetningu hennar ógna öryggi barnanna. Þegar strætó stoppar, hindrar hann sýn akandi vegfarenda um Háholt svo slys gætu auðveldlega orðið. Við höfum nokkrum sinnum vakið athygli á þessu undanfarin tvö ár, en höfum engar fregnir fengið af úrbótum.

Við stöndum við bakið á skóla barnanna okkar og viljum sjá verkin tala. Við skorum á bæjaryfirvöld að hika hvergi og leita allra leiða til að kappkosta að framkvæmdir við skólahúsnæðið og íþróttahúsið dragist ekki á langinn og að umferðaröryggi við skólann sé tryggt.

Foreldrar barna í Brekkubæjarskóla óska hér með eftir ítarlegri upplýsingum um framkvæmdirnar við skólann og íþróttahúsið. Við óskum eftir upplýsingum um tímalínu framkvæmdanna og vera upplýst reglulega um framgang þeirra og skorum á að umferðaröryggið verði bætt áður en slys verða.“

Foreldrafélag lýsir áhyggjum yfir húsnæðismálum og umferðaröryggi - Skessuhorn