Sunna Njálsdóttir forstöðumaður Bókasafns Grundarfjarðar. Ljósmyndir: tfk

Bókasafn Grundarfjarðar 100 ára

Fimmtudaginn 28. september fagnaði Bókasafn Grundarfjarðar 100 ára afmæli. Af því tilefni var boðið til kaffisamsætis í bókasafninu sem er staðsett í Sögumiðstöðinni. Sunna Njálsdóttir bókasafnsvörður fór yfir sögu safnsins áður en hún bauð gestum að gæða sér á gómsætum veitingum. Glæsileg sýning er í Sögumiðstöðinni en þar má sjá marga forvitnilega og merkilega hluti í eigu safnsins.

Bókasafn Grundarfjarðar 100 ára - Skessuhorn