Fleiri verkefni á sviði ættleiðinga færð til sýslumanns

Tiltekin verkefni á sviði ættleiðinga, sem hingað til hafa verið á verksviði Íslenskrar ættleiðingar, voru færð til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu með nýrri reglugerð um ættleiðingar sem tók gildi 1. október.  Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu kemur fram að meðal breytinga er að nú mun sýslumaður bjóða uppkomnum ættleiddum upp á ráðgjöf einstaklingum að kostnaðarlausu. Í nýju reglugerðinni um ættleiðingar, nr. 1030/2023, er einnig að finna breytingar sem snúa að skilyrðum sem umsækjendur þurfa að uppfylla. Reglugerðin kemur í stað núgildandi reglugerðar um ættleiðingar nr. 238/2005, en drög að reglugerðinni fóru til kynningar í samráðsgátt í júní.

Fleiri verkefni á sviði ættleiðinga færð til sýslumanns - Skessuhorn