
Landsnet boðar til fundar um Holtavörðuheiðarlínu 1
„Nýr valkostur til umhverfismats,“ er yfirskrift fundar sem Landsnet hefur boðað til annað kvöld, þriðjudaginn 3. október klukkan 20 á Hótel Hamri í Borgarnesi. „Við bjóðum til fundar og samtals um nýjan valkost vegna Holtavörðuheiðarlínu 1, sem fengið hefur heitið Hallarmúlaleið. Á fundinum verður kynnt greinargerð um nýjan valkost í umhverfismati verkefnisins, tilurð valkostsins, hvernig verður fjallað um hann í umhverfismatinu og málsmeðferð.“