
Fréttir


Rætt við Svövu og Unnstein í Blómasetrinu Kaffi Kyrrð í Borgarnesi Hjónin Svava Víglundsdóttir og Unnsteinn Arason í Borgarfirði hafa um árabil rekið Blómasetrið Kaffi Kyrrð við Skúlagötu 13 í Borgarnesi auk þess að bjóða ferðafólki upp á gistingu í fjórum húsum. Óhætt er að segja að kaffihúsið þeirra hafi slegið í gegn og hefur…Lesa meira

Hraðstefnumót bílaumboðsins Öskju hefst í dag og lýkur eftir tíu daga. Á stefnumótinu eru sýndir valdir bílar frá Mercedes-Benz, Kia, Honda sem freista þess að finna verðuga lífsförunauta á landsbyggðinni,“ segir í tilkynningu. Fyrsta Hraðstefnumótið verður haldið í Vestmannaeyjum í dag en bílarnir munu í kjölfarið heimsækja Höfn, Egilsstaði, Reyðarfjörð, Akureyri, Sauðárkrók, Ísafjörð og enda…Lesa meira

Það er búið að vera viðburðaríkt á Ingjaldshóli í sumar. Kirkjan og safnaðarheimilið var málað hátt sem lágt. Starfsmenn á vegum Kristjáns Sævarssonar málarameistara, KS málun ehf. sáu um verkið og var útkoman stórglæsileg. Eins og flestir vita þá duga þeir peningar sem ætlaðir eru til viðhalds á kirkjum skammt en með hjálp góðra vina…Lesa meira

Um helgina fóru fram vináttuleikar fatlaðra í keilu þar sem landslið Svía sótti Ísland heim. Þar leiddu saman hesta sína átta einstaklingar úr landsliðum fatlaðra frá Íslandi og Svíþjóð og fór keppnin fram í Keilusal Akraness við Vesturgötu. Þar átti ÍA tvo fulltrúa og voru það Tómas Freyr Garðarsson og Jóhanna Nína Karlsdóttir sem kepptu…Lesa meira

Það er þéttur hópur fólks sem mætir reglulega í pottinn við Jaðarsbakkalaug á Akranesi. Síðastliðinn mánudag var fallegu haustveðri fagnað og boðið upp á veitingar. Helga Ólöf Óliversdóttir sendi Skessuhorni myndina með sólarkveðju.Lesa meira

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku voru lögð fram drög að samningi við ráðgjafarsvið KPMG um að móta tillögur að stofnun þróunarfélags um uppbyggingu í Brákarey ásamt framkvæmd hagsmunamats við slíka uppbyggingu fyrir samfélagið. Byggðarráð samþykkti framlögð drög og fól sveitarstjóra að undirrita með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.Lesa meira

Dagskrá er komin á Heima-Skaga tónlistarhátíðina sem verður haldin laugardaginn 28. október næstkomandi. Þær ellefu hljómsveitir og listamenn sem koma þar fram eru eftirfarandi: Árstíðir, Bogomil Font & Milljónamæringarnir, Diddú, GDRN og Magnús Jóhann, Kolrassa Krókríðandi, Langi Seli og Skuggarnir, Magnús Þór Sigmundsson, Mugison, Tappi Tíkarras og Valgerður og Eddi. Lokapartý hátíðarinnar verður í Bíóhöllinni…Lesa meira

Í fundargerð byggðarráðs Borgarbyggðar frá 7. september sl. er farið yfir málefni Slökkviliðs Borgarbyggðar. Þar kemur m.a. fram að útköll slökkviliðsins hafi tvöfaldast frá síðasta ári. Það sem af er þessu ári eru útköllin orðin 48 og er verulegur hluti þeirra vegna slysa á þjóðvegum á starfssvæði slökkviliðsins. ,,Slökkvilið Borgarbyggðar er afar vel mannað af…Lesa meira

„Dálítið lúinn og þegjandi hás eftir smölun og hróp í heimalandi Grundar í Skorradal,“ skrifaði Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands á FB síðu embættisins um helgina. Sendi hann jafnframt öllum sem nú standa í göngum og réttum hlýjar kveðjur. „Í heimi sauðfjárbænda er smalamennska brýn nauðsyn en fyrir okkur borgarbörnin getur hún verið skemmtileg afþreying…Lesa meira