Forsetinn rekur hér eftir hlíðinni heim að Grund. Ljósmyndir: Forsetaembættið.

Forsetinn lúinn og hás eftir smalamennsku í Skorradal

„Dálítið lúinn og þegjandi hás eftir smölun og hróp í heimalandi Grundar í Skorradal,“ skrifaði Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands á FB síðu embættisins um helgina. Sendi hann jafnframt öllum sem nú standa í göngum og réttum hlýjar kveðjur. „Í heimi sauðfjárbænda er smalamennska brýn nauðsyn en fyrir okkur borgarbörnin getur hún verið skemmtileg afþreying í heilnæmu lofti og guðsgrænni náttúru. Ekki er verra ef manni tekst að gera eitthvert gagn í leiðinni,“ skrifaði Guðni.

Forsetinn lúinn og hás eftir smalamennsku í Skorradal - Skessuhorn