Á áningarstað leitarmanna við Réttarvatn á Arnarvatnsheiði þurfti að huga að lausri skeifu. Ljósm. Íris Þórlaug Ármannsdóttir

Svipmyndir úr göngum og réttum í vikunni


Á laugardaginn var stóra smalamennskan á Hofsstöðum í Eyja- og Miklaholtshreppi. „Gekk það vel og voru það einungis þeir sem fóru hæst sem lentu í þoku. Alls voru yfir 20 smalar, fólk kemur ár frá ári til að taka þátt og svo koma nýir inn fyrir þá sem gátu ekki komist þetta árið,“ skrifaði Eggert bóndi á FB síðu sína. Gengnir voru yfir 20 km á þessari leið sem á köflum er alls ekki auðveld.
Svipmyndir úr göngum og réttum í vikunni - Skessuhorn