Askja fer á hraðstefnumót við landsbyggðina

Hraðstefnumót bílaumboðsins Öskju hefst í dag og lýkur eftir tíu daga. Á stefnumótinu eru sýndir valdir bílar frá Mercedes-Benz, Kia, Honda sem freista þess að finna verðuga lífsförunauta á landsbyggðinni,“ segir í tilkynningu. Fyrsta Hraðstefnumótið verður haldið í Vestmannaeyjum í dag en bílarnir munu í kjölfarið heimsækja Höfn, Egilsstaði, Reyðarfjörð, Akureyri, Sauðárkrók, Ísafjörð og enda í Stykkishólmi laugardaginn 23. september við Skúrinn, Aðalgötu 25.

Askja fer á hraðstefnumót við landsbyggðina - Skessuhorn