Fréttir

true

Bjóða út næsta áfanga í Gufudalssveitinni

Vegagerðin hefur auglýst úboð á næsta kafla endurnýjunar Vestfjarðarvegar (60): „Gufudalssveit, Hallsteinsnes – Skálanes, fyllingar.“ Í verkinu felst nýbygging Vestfjarðarvegar á um 3,6 km kafla og bygging um 119 m langrar bráðabirgðabrúar yfir Gufufjörð. Verkið er einn áfangi af mörgum í uppbyggingu Vestfjarðarvegar um Gufudalssveit, milli Skálaness og Bjarkarlundar, en framkvæmdir hafa staðið yfir síðustu…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin á Garðabraut 1

Eftir hádegi á mánudaginn var tekin skóflustunga að nýju fjölbýlishúsi sem staðsett verður á Garðabraut 1 þar sem húsnæði KFUM & K stóð til margra ára. Með skóflur að vopni voru mættir eigendur Byggingarfélagsins Bestla sem sér um framkvæmd byggingarinnar, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, formaður bæjarráðs og formaður skipulags- og umhverfisráðs. Blaðamaður Skessuhorns kom við á skrifstofu…Lesa meira

true

Endurnýja götulýsinguna á Akranesi

Þessa dagana er af krafti unnið við að endurnýja götulýsingu á Akranesi. Verktakar eru á ferð og skipta út gömlu götuljósunum fyrir nýja og mun nettari led lampa sem jafnframt gefa betri lýsingu. Í framtíðinni mun því talsverð orka sparast. Eins og greint var frá í Skessuhorni í júní samþykkti skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar að…Lesa meira

true

Stefna á Ellu Fitzgerald tónleika á Akranesi

Eftir þrjá vel heppnaða tónleika í Salnum í Kópavogi leggja nokkrar jazzsöngkonur land undir fót og slá upp tónleikum á Akureyri og Akranesi til heiðurs goðsögninni Ellu Fitzgerald. Tónleikarnir á Akranesi fara fram laugardaginn 7. október kl. 20.00 og verða í Tónbergi. Miðaverð er 7.500 krónur en afsláttur er fyrir eldri borgara og námsmenn. Miða…Lesa meira

true

Hefja brátt briddsstarfið

Þessir glaðhlakkalegu karlar á myndinni eru þeir Ingimundur og Jón. Auk þess að vera báðir sauðfjárbændur stýra þeir af einurð starfi Bridgefélags Borgarfjarðar. Í réttunum um helgina ákváðu þeir að blása í lúðra og láta vetrarstarf félagsins hefjast mánudaginn 25. september næstkomandi. Sem fyrr verður spilað í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal klukkan 20. Þangað eru…Lesa meira

true

U2 messa framundan í Akraneskirkju

Það mun írsk stemning liggja yfir vötnum í Akraneskirkju á laugardaginn þegar Kór Keflavíkurkirkju ásamt hljómsveit kemur í heimsókn og flytur U2 messu sem verður að sjálfsögðu klukkan 2. Kórinn frumflutti messuna á Ljósanótt fyrir fullu húsi í Keflavíkurkirkju fyrir skömmu og ætlar að endurtaka leikinn í Akraneskirkju. Seinna um daginn verður kórinn á ferðinni…Lesa meira

true

Nýr strandblaksvöllur vígður á Hvanneyri

Í gær var strandblaksvöllur á Hvanneyri vígður í upphafi Sverrismóts í knattspyrnu. Að sögn Kristjáns Guðmundssonar formanns Ungmennafélagsins Íslendings þá er það félagið sem stendur að verkefninu, en það var blaklið Íslendings, Hvannirnar, sem vígðu völlinn. Þeim til heiðurs hefur völlurinn verður nefndur Hvannavöllur. Hvannir hafa starfrækt lið í yfir 30 ár á Hvanneyri.Lesa meira

true

Tveir fengu rautt í tapi Kára gegn Árbæ

Árbær og Kári áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Fylkisvelli í Árbæ. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en heimamenn í Árbæ komust yfir í leiknum á 23. mínútu með marki frá Jordan Tyler. Sex mínútum fyrir hálfleik jafnaði Hektor Bergmann Garðarsson metin fyrir Kára eftir…Lesa meira

true

Veik von Víkings úr sögunni eftir tap á móti Þrótti Vogum

Víkingur Ólafsvík gerði ekki góða ferð í sveitarfélagið Voga þegar þeir heimsóttu lið Þróttar í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Markalaust var eftir fyrri hálfleikinn en hlutirnir fóru loks að gerast í þeim seinni. Ólafur Örn Eyjólfsson kom heimamönnum yfir eftir tæpar tíu mínútur og skömmu síðar varð Guðbjörn Smári Ólafsson leikmaður Víkings…Lesa meira

true

Skagamenn stigu stórt skref í áttina að Bestu deildinni eftir sigur á Njarðvík

Njarðvík og ÍA léku á laugardaginn í 21. og næstsíðustu umferð Lengjudeildar karla í knattspyrnu og var leikurinn á Rafholtsvellinum í Njarðvík. Skagamenn náðu undirtökunum snemma leiks þegar varnarmaðurinn Johannes Vall átti góðan sprett upp allan völlinn á sjöundu mínútu. Hann sendi boltann á fjær og beint á kollinn á Árna Salvar Heimisson sem hamraði…Lesa meira