U2 messa framundan í Akraneskirkju

Það mun írsk stemning liggja yfir vötnum í Akraneskirkju á laugardaginn þegar Kór Keflavíkurkirkju ásamt hljómsveit kemur í heimsókn og flytur U2 messu sem verður að sjálfsögðu klukkan 2. Kórinn frumflutti messuna á Ljósanótt fyrir fullu húsi í Keflavíkurkirkju fyrir skömmu og ætlar að endurtaka leikinn í Akraneskirkju. Seinna um daginn verður kórinn á ferðinni í Laugarneskirkju í Reykjavík klukkan 17. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í kórstjóranum Arnóri Brynjari Vilbergssyni í lok síðustu viku til að forvitnast aðeins um þessa merkilegu messu sem stendur yfir í rúma klukkustund.

U2 messa framundan í Akraneskirkju - Skessuhorn