Fréttir

true

Fjölmenni tók þátt í farsældarþingi

Alls tóku yfir 1.100 manns þátt í Farsældarþingi sem mennta- og barnamálaráðuneytið stóð fyrir í Hörpu í gær, þar af voru um 700 manns á staðnum. Á þinginu fór fram víðtækt samtal fagfólks, þjónustuveitenda, stjórnvalda, barna og aðstandenda um farsæld barna og var þingið mikilvægur liður í stefnumótun og áætlanagerð þegar kemur að innleiðingu laga…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar á þriðju hæð Grundaskóla

Verktakar vinna nú af krafti að uppbyggingu Grundaskóla á Akranesi og eru framkvæmdir nú hafnar á þriðju hæðinni. Brátt munu útlínur á nýjum Grundaskóla koma í ljós. Burðarbitar rísa nú hver af öðrum og iðnaðarmenn leggja mikinn metnað í verkið. „Það gleður að sjá marga fyrrum nemendur Grundaskóla koma að verkefninu og sinna því af…Lesa meira

true

Helgaropnun í Bjarnalaug í vetur

Vetraropnun Bjarnalaugar á Akranesi hófst laugardaginn 2. september síðastliðinn en sú nýjung verður í vetur að opið verður fyrir almenning alla laugardaga og sunnudaga frá klukkan 10 til 15. Tilvalið fyrir foreldra og ömmur og afa að kíkja í laugina með börnin því hún er upphituð á þessum dögum og þá er heitur pottur fyrir…Lesa meira

true

Valdimar GK landaði í Grundarfirði eftir fyrsta túr

Línubáturinn Valdimar GK 195 kom til Grundarfjarðarhafnar í gær og landaði aflanum úr fyrsta túr vertíðarinnar. Ekki voru hífð nema rúmlega 170 kör upp á bryggju en skipið hafði fengið í skrúfuna í túrnum. Kafari var fenginn til að skera úr skrúfunni áður en haldið var á miðin á ný.Lesa meira

true

Mældur á 154 kílómetra hraða

Í liðinni viku voru höfð afskipti af alls 40 ökumönnum í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi og eru þeir grunaðir um of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 154 km/klst. Þrír ökumenn voru teknir úr umferð vegna gruns um ölvun við akstur og einn til viðbótar er grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og…Lesa meira

true

Þórður og Bára ráðin til KSÍ

Skagamaðurinn Þórður Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari U16 og U17 landsliða kvenna í knattspyrnu. Samhliða því mun hann þjálfa U23 lið kvenna. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Þórður, sem hefur lokið KSÍ Pro gráðu, hefur mikla reynslu sem þjálfari og hefur m.a. þjálfað bæði karla og kvennalið ÍA í meistaraflokki og starfaði einnig sem…Lesa meira

true

Fjölmenni á iðnaðarsýningu í Laugardalshöll

Frá fimmtudegi til laugardags í liðinni viku fór fram Iðnaðarsýningin 2023 í Laugardalshöll í Reykjavík. Áherslusvið sýningarinnar voru mannvirki, orka, innviðir, hönnun, framleiðsla og vistvænar lausnir. Um áttatíu sýningaraðilar tóku þátt og mátti sjá ýmsar nýjungar í þróun og tækni, ásamt því sem mörg stoðfyrirtæki kynntu starfsemina. Samkvæmt opinberum hagtölum skapar iðnaður með beinum hætti…Lesa meira

true

Þang- og þarasláttur í Vatnsfirði

Í síðustu viku var unnið við þangslátt í Vatnsfirði á Barðaströnd. Þarna eru á ferðinni sláttuprammar frá Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum. Verksmiðjan sækist eftir klórþangi sem vex á klöppum og skerjum en utar er það hrossaþarinn sem er sleginn þegar komið er fram á haustið. Siglt er með þang og þara á Gretti til Reykhóla þar…Lesa meira

true

Mikill fjöldi var á tjaldsvæðinu á Akranesi í sumar

Tjaldsvæðið á Akranesi er staðsett ofan við sandfjöruna í Kalmansvík. Af tjaldsvæðinu er fallegt útsýni yfir á Snæfellsnes þar sem jökullinn skartar sínu fegursta á góðviðrisdögum. Frá tjaldsvæðinu eru skemmtilegar gönguleiðir, meðal annars með ströndinni að Elínarhöfða og Höfðavík. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir fólk á ferðalagi hvort sem það ferðast með húsvagna eða…Lesa meira

true

Stefnt að því að pör og fjölskyldufólk flytji á Hótel Glym

Upplýsingafundur um komu umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hvalfjarðarsveit Vinnumálastofnun boðaði íbúa í Hvalfjarðarsveit til opins upplýsingafundar síðdegis í dag á Hótel Glymi. Þar var kynnt fyrirhugað úrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd en eins og fram hefur komið hefur ríkið einmitt tekið Hótel Glym á leigu til allt að tveggja ára frá 1. október…Lesa meira