
Mjög góð aflabrögð voru á mánudaginn hjá bátum í Snæfellsbæ og sjómenn kátir með daginn, en eins og þeir segja: „Það er nóg af fiski hérna á heimaslóðum.“ Línubátarnir Örvar SH og Tjaldur SH lönduðu á mánudagsmorgun um 95 tonnum hvor og einnig var góður afli hjá dragnótarbátum bæði frá Rifi og Ólafsvík, þar sem…Lesa meira







