
Alls voru 7.600 atvinnulausir í júlí síðastliðnum samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. „Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 3,3% í júlí, hlutfall starfandi var 77,8% og atvinnuþátttaka var 80,5%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,7 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi dróst saman um 1,1 prósentustig og atvinnuþátttaka dróst saman um 0,5 prósentustig.“Lesa meira








