
Bendir á umsögn Stykkishólms um samgönguáætlun
Í umsögn sinni við tillögum innviðaráðherra um nýja samgönguáætlun mótmælti Sveitarfélagið Stykkishólmur ýmsum atriðum sem þar koma fram. Meðal annars sérstaklega því að framkvæmdum við stofnveg um Skógarströnd eigi enn að fresta enda fer það beinlínis gegn markmiði með lögum um samgönguáætlun. Í bréfi sem bæjarstjóri sendi nýverið þingmönnum NV kjördæmis vegna málsins segir: „Sveitarfélagið leggur til að framkvæmdum við Snæfellsnesveg nr. 53 um Skógarströnd verðir hraðað skv. fyrirliggjandi áætlunum þannig að auknu fjármagni verði veitt annars vegar til hönnunar vegarins um Skógarstönd (skilgreiningu, frumdrög að hönnun, forhönnun og verkhönnun) og hins vegar framkvæmda. Með því móti væri unnt að halda áfram framkvæmdum við veginn á næsta ári og ljúka framkvæmdum við veginn eigi síðar er 2028.“