Hér er réttarhald í Fellsendarétt í Dölum við það að hefjast og fólk að komast í gírinn. Ljósm. úr safni/bj.

Réttir á Vesturlandi í haust

Framundan er tími gangna og rétta um allt land. Líkt og undanfarin ár taka sveitarfélög í landinu saman upplýsingar um réttardaga og senda Bændasamtökum Íslands sem nú hafa birt lista yfir réttir á Vesturlandi. Fyrstu réttir verða um næstu helgi, þegar réttað verður í Nesmelsrétt í Hvítársíðu laugardaginn 2. september og sunnudaginn 3. september verður réttað í Kaldárbakkarétt í Kolbeinsstaðarhreppi. Langflestar réttir verða svo næstu tvær vikur á eftir. Listinn er birtur hér með fyrirvara um villur (leiðréttingar ef þarf, óskast sendar á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is):

Arnarhólsrétt í Helgafellssveit. Sunnudaginn 17. september kl. 11.00

Bláfeldarrétt í Staðarsveit, Snæf. Laugardaginn 23. sept.

Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. Sunnudaginn 10. sept. kl. 10.00, seinni réttir sun. 24. sept. kl. 10.00

Brekkurétt í Saurbæ, Dölum. Sunnudaginn 17. sept. kl. 11.00, seinni réttir sun. 1. okt. kl. 13.00

Fellsendarétt í Miðdölum, Dölum. Sunnudaginn 10. sept. kl. 14.00, aðrar réttir sun. 26. sept. kl. 14.00, þriðju réttir sun. 24. sept. kl. 14.00

Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dölum. Laugardaginn 16. sept., seinni réttir lau. 30. sept.

Fljótstungurétt á Hvítársíðu, Mýras. Laugardaginn 9. sept. og sun. 10. sept.

Gillastaðarétt í Laxárdal, Dölum. Sunnudaginn 17. sept. kl. 12.00, seinni réttir sun. 1. okt. kl. 16.00

Grafarrétt í Breiðuvík, Snæf. Laugardaginn 23. sept.

Grímsstaðarétt á Mýrum. Þriðjudaginn 12. sept. kl. 10.00, seinni réttir mán. 25. sept. kl. 14.00, þriðju réttir mán. 2. okt. kl. 14.00

Hítardalsrétt í Hítardal. Mánud. 11. sept. kl. 10, önnur rétt sunnud. 24. sept. kl. 16 og þriðja rétt mánud. 2. okt. kl. 11

Hornsrétt í Skorradal, Borgarf. Sunnudaginn 10. september kl. 10.00, seinni laugardaginn 23. september

Hólmarétt í Hörðudal, Dölum. Sunnudagur 10. september kl. 10.00, seinni sunnudaginn 24. september kl. 10.00

Hrafnkelsstaðarétt í Grundarfirði. Laugardaginn 16. sept.

Kaldárbakkarétt í Kolbeinsstaðarhr. Sunnudaginn 3. sept. kl. 11.00

Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dölum. Laugardaginn 9. sept, seinni réttir laugardaginn 23. sept.

Langholtsrétt í Eyja- og Miklaholtshr.         Vantar upplýsingar

Ljárskógarétt í Laxárdal, Dölum. Laugardaginn 9. sept.

Mýrar í Grundarfirði. Laugardaginn 16. sept.

Mýrdalsrétt í Hnappadal. Sunnudaginn 17. september kl. 16.00, seinni sunnudaginn 8. október kl. 16.00

Nesmelsrétt í Hvítársíðu, Mýr. Laugardaginn 2. september

Núparétt í Melasveit, Hvalfjarðarsveit. Sunnudaginn 10. september kl. 13.00, seinni laugardaginn 23. september

Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borgarf. Miðvikudaginn 13. september kl. 9.00, seinni sunnudaginn 1. oktober kl. 10.00

Ólafsvíkurrétt í Ólafsvík. Laugardaginn 16. sept.

Ósrétt á Skógarströnd, Dölum. Föstudaginn 29. september kl. 10.00

Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borgarf. Sunnudaginn 17. september kl. 10.00, seinni sunnudaginn 1. október kl. 14.00

Reynisrétt undir Akrafjalli, Hvalfj.sv. Laugardaginn 16. sept.

Skarðsrétt, Skarðsströnd, Dölum. Sunnudaginn 17. sept.

Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dölum. Sunnudaginn 17. september kl. 11.00, seinni sunnudaginn 1. október kl. 14.00

Svarthamarsrétt á Hvalfj.str. Sunnudaginn 17. september kl. 10.00, seinni sunnudaginn 1. október

Svignaskarðsrétt, Mýrasýslu. Mánudaginn 11. september kl. 10.00, seinni 25. september kl. 10.00

Tungurétt á Fellsströnd, Dölum. Föstudaginn 15. sept.

Vörðufellsrétt á Skógarströnd, Dölum. Laugardaginn 16. september kl. 13.00, seinni sunnudaginn 8. október kl. 13.00

Þverárrétt Eyja- og Miklaholtshr. Sunnudaginn 17. september

Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýrasýslu. Mánudaginn 11. september kl. 07.00, seinni sunnudaginn 17. september kl. 17.00.

Þæfusteinsrétt á Hellissandi/Rifi, Snæf. Laugardaginn 16. sept.

Ölkeldurétt í Staðarsveit, Snæf. Laugardaginn 23. sept.

Réttir á Vesturlandi í haust - Skessuhorn