
Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í Norðurárdal auglýsti um miðja síðustu viku eftir fjórtán kvígum sem hurfu úr girðingu við bæinn helgina áður. Mánudaginn 21. ágúst fundust þær í fjallgirðingu við bæinn Krók, innar í dalnum. Kvígurnar voru reknar áleiðis heim en þurftu heimamenn að skilja við hópinn við bæinn Hól þegar komið var myrkur.…Lesa meira








